Húsasalan og Geir Sigurðsson löggiltur fasteignasali, sími 655-9000, [email protected], kynna:
Falleg og vel staðsett þriggja herbergja íbúð á efstu hæð með suðursvölum (3.hæð). Birt stærð eignarinnar er 63,3 fm.
Íbúðin er staðsett á kyrrlátum stað í fjölskylduvænu hverfi þar sem er stutt göngufæri í skóla, þjónustu og vinsælar gönguleiðir í Laugardalnum. Íbúðin skiptist forstofugang, stofu, baðherbergi, eldhús með borðkrók og tvö herbergi. Íbúðin er skráð tveggja herbergja en hefur verið breytt í þriggja herbergja íbúð. Góðar suðursvalir.
Nánari lýsing:Komið er inn á parketlagðan
forstofugang með fatahengi. Parketlögð
stofa með útsýni. Parketlagt stórt
herbergi með fataskápum og svaladyrum út á góðar suðursvalir með útsýni. Flísalagt b
aðherbergi með baðkari, handklæðaofn og glugga. E
ldhús, upprunaleg innrétting með Gorenje tækjum, span helluborði, viftu og ofni. Parketlagt lítið
herbergi með fataskáp (laus skápur sem fylgir).
Á jarðhæð er sameiginlegt þvottaherbergi, geymsla íbúðarinnar merkt 0015 og einnig til afnota er geymsla undir stiga (sameiginleg geymsla) .
Sérmerkt bílastæði á lóð.
Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Hlýleg íbúð á kyrrlátum stað.Nánari upplýsingar veitir Geir Sigurðsson löggiltur fasteignasali í síma 655-9000 eða [email protected].