***** ÍBÚÐIN ER SELD *****Vel skipulögð 86,1 fm 4.herbergja íbúð á efstu hæð á þessum eftirsótta stað. Íbúðin skiptist í gang, baðherbergi, þrjú herbergi. stofu og eldhús með borðkróki eldhús. Í kjallara er geymsla íbúðarinnar og sameiginlegt þvottaherbergi..Samkvæmt HMS er birt stærð eignarinnar 86,1 fm þ.a. er geymsla íbúðarinnar í kjallara 4,5 fm
Nánari lýsing: Komið er inn í parketlagðan gang og forstofuhol með fataskáp og eru viðarþiljur á veggjum. Baðherbergi er með baðkari, veggflísum og gólfdúk. Rúmgott dúklagt svefnherbergi með góðum fataskáp. Tvö dúklögð barnaherbergi með fataskápum. Parketlögð stofa með svaladyrum út á suðursvalir. Eldhús með gólfdúk, upprunalegri eldhúsinnréttingu með eldavél og viftu.
** VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ
** SUÐUR SVALIR OG ÚTSÝNI