Kaplaskjólsvegur 29, 107 Reykjavík (Vesturbær)
59.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
61 m2
59.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1964
Brunabótamat
29.150.000
Fasteignamat
49.400.000

Falleg og vel staðsett íbúð á þriðju hæð með suðursvölum í vinsælu fjölbýlishúsi sem nýlega var viðgert og málað að utan. 

Íbúðin skiptist í forstofurými, stofu, eldhúsi með borðkrók, stórt herbergi, baðherbergi og geymslu á jarðhæð. Á jarðhæð er einnig sameiginlegt þvottaherbergi, þurrkherbergi og sameiginleg hjólageymsla. 

Skv. HMS er íbúðin merkt 02-0302, birt stærð íbúðar 61,2 fm, þ.a. er geymsla 3,0 fm. Fyrirhugað fasteignamat næsta árs er kr. 51.450.000,-

Nánari lýsing: Parketlagt forstofurými með fatahengi og skáp. Parketlögð rúmgóð stofa. Parketlagt eldhús með borðkrók og svaladyrum út á suðursvalir með timburklæðningu á svalargólfi. Eldhús er með upprunalegri innréttingu með eldavél og flísum milli skápa. Stórt parketlagt herbergi með stórum fataskáp. Flísalagt baðherbergi með vegghengdu salerni, baðkari og skáp við vask. 

Frábær staðsetning skammt frá Vesturbæjarlauginni, Kaffi Vest, Ísbúð Vesturbæjar, KR vellinum og er einungis 10 mínútna ganga í Háskóla Íslands.

Húsið var nýlega viðgert og málað að utan.  
Nýlegur mynd-dyrasími.
Nýlega var skipt um eldhúsglugga og svaladyr.
Nýlega var skipt um niðurfallslögn að hluta, innanhúss.
Skolplagnir endurnýjaðar fyrir u.þ.b. 10 - 12 árum 
Nýleg blöndunartæki við baðkar.
Stórt sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi sem fáar íbúðir í húsinu nýta.
Stór sameiginleg hjólageymsla.
Hitalögn í gangstétt framan við húsið.
Samkomulag er um að íbúar noti hluta lóðarinnar fyrir matjurtargarða.  

Nánari upplýsingar:  Geir Sigurðsson,  lögg. fasteignasali, s: 655-9000, netfang [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.