Dvergaborgir 3, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
59.900.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
62 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1996
Brunabótamat
32.300.000
Fasteignamat
47.650.000


Rúmgóð og björt tveggja herbergja íbúð á 2.hæð (jarðhæð garðmegin). Íbúðin er nýmáluð og tilbúin til afhendingar. Sérinngangur af svölum. Fjallasýn 
Íbúðin skiptist í forstofu með geymslurými og sérinngangi, svefnherbergi, baðherbergi með tengingum fyrir þvottavél, stofu með svaladyrum út á verönd/garð og opnu eldhúsi með tengingum fyrir uppþvottavél.

Samkvæmt skráningu HMS: 62,2 fm íbúð á 2.hæð merkt 01-0202 þar af 3,9 fm geymsla á 1.hæð merkt 01-0104.

Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu um inngang af opnum svalagangi á 2.hæð, forstofan er með gólfflísum og fataskáp ásamt hengi og geymsluskáp. Rúmgott parketlagt herbergi með stórum fataskáp. Gott flísalagt baðherbergi með glugga, sturtu og eru tengingar fyrir þvottavél á baðherberginu. Opið eldhús með helluborði, Eletrolux ofn og Fagor viftu. Parketlögð stofa með svaladyrum út á suður verönd (garð) með skjólvegg. Geymsla íbúðarinnar er á 1.hæð merkt 01-0104 við sameiginlega hjólageymslu. 

**** Íbúðin er hreingerð og nýmáluð - tilbúin til afhendingar
**** Nýlegt helluborð og ofn 
**** Nýlegt parket
**** Nýr vaskur, nýr baðskápur og nýtt salerni
**** Nýlegir hitaofnar í íbúðinni
**** Ljósleiðari
**** Fyrir u.þ.b. þremur árum var skipt um rennur og niðurfallslagnir frá rennum.
**** Sérinngangur af svalagangi
**** Verönd á suðurlóð
**** Sérmerkt bílastæði á lóð fyrir íbúðina
**** Góð staða hússjóðs
**** Fjallasýn 
Falleg og mjög snyrtileg íbúð.  

Nánari upplýsingar veitir Geir Sigurðsson, löggiltur fasteignasali, [email protected]; s: 655-9000

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.